Bild í Þýskalandi segir það nánast öruggt að Erling Haaland gangi í raðir Manchester City frá Dortmund í sumar.
Talað er um að félagaskiptin kosti City á endanum 306 milljónir punda.
Kaupverðið til Dortmund eru 64 milljónir punda en slík klásúla er í samningi hans við Dortmund. Þó gæti kaupverðið hækkað örlítið og orðið 71 milljón punda.
Bild segir að Haaland muni fá 168 milljónir punda í laun hjá City og að auki 25 milljónir punda fyrir að skrifa undir.
Þá er umboðsmaður hans Mino Raiola á höttunum á eftir 42 milljónum punda fyrir að koma Haaland til City, faðir hans Alf-Inge fær hluta af þeirri upphæð.
Samtals mun það kosta City rúman 51 milljarð íslenskra króna að fá norska framherjann.