Anna Kol­brún Árna­dóttir er látin – Vísir

0
70

Anna Kol­brún Árna­dóttir er látin Anna Kolbrún Árnadóttir, varaþingmaður og fyrrverandi þingmaður, er látin 53 ára að aldri. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gærmorgun.

Frá þessu var greint í upphafi þingfundar í dag. Verður hennar minnst við upphaf þingfundar á mánudaginn næstkomandi.

Anna Kolbrún sat á þingi fyrir Miðflokkinn í Norðausturkjördæmi árin 2017 til 2021. Hún var fædd á Akureyri þann 16. apríl árið 1970. Fram að þingmennsku starfaði hún sem sjúkraliði og fagstjóri sérkennslu. Hún hafði greint frá því í viðtölum að hún hafi glímt við krabbamein frá árinu 2011.

Anna Kolbrún lætur eftir sig eiginmann, eitt barn og þrjú stjúpbörn.