Innlent
| mbl
| 14.12.2020
| 5:50
Mynd úr safni.
Maður var frelsissviptur, laminn og rændur í Kópavoginum og árásarmannanna leitað að sögn lögreglu en er málið í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu fyrir tímabilið frá klukkan 17 í gær til fimm í morgun. Þar segir að nóttin hafi verið frekar róleg og 55 mál skráð á vaktinni.
Einn gisti fangaklefa eftir að hafa verið handtekin í miðborginni þar sem hann hafði brotist inn á hótel. Engin starfsemi er á hótelinu sem stendur.
Að lokum voru fjórir ökumenn stöðvaðir fyrir ölvunar og eða fíkniefnaakstur.