Arna hjá Samherja enn með stöðu sakbornings

0
188

Arna McClure, lögfræðingur Samherja, lagði kröfu sína fyrir héraðsdóm.

Kröfu Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja, um að rannsókn héraðssaksóknara á hendur henni yrði úrskurðuð ólögmæt og felld niður, var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Arna hefur haft réttarstöðu sakbornings í tæp þrjú ár vegna meintra brota í Namibíu en hún byggði kröfu sína annars vegar á tímalengd málsins, en það hefur staðið yfir í tæp þrjú ár. Arna kvaðst ekki hafa heyrt frá héraðssaksóknara í 17 mánuði, þegar hún lagði fram kröfuna í janúar, sem væri í bága við sakamálalög.  

Hins vegar byggði Arna kröfu sína á því að rannsóknin hefði verið í höndum Finns Þórs Vilhjálmssonar, en hann er bróðir Inga Freys Vilhjálmssonar, blaðamanns á Heimildinni og hefur fjallað mikið um málið.  

Hyggst kæra úrskurðinn Halldór Brynjar Halldórsson, lögfræðingur Örnu, hyggst kæra úrskurðinn til Landsréttar og væntir þar ólíkrar niðurstöðu í ljósi nýrra upplýsinga, sem ekki lágu fyrir þegar málið var flutt fyrir héraði.  

Hann segir niðurstöðu úrskurðarins að stærstum hluta hafa ráðist af því að Ingi Freyr hafi ekki haft persónulegra hagsmuna að gæta heldur hafi eingöngu skrifað fréttir um málið, sem sé partur af starfi hans.  

Halldór segir það þó liggja skýrt fyrir í ljósi frétta dagsins, að Ingi Freyr hafi persónulegra hagsmuna að gæta, en hann hefur hlotið réttarstöðu sakbornings í rannsókn á umfjöllun fjölmiðla um svo­kall­aða „skæru­liða­deild­“ Sam­herja.  

„Persónulegri verða hagsmunirnir vart“ „Hann hefur réttarstöðu sakbornings í rannsókn þar sem skjólstæðingur minn hefur stöðu brotaþola. Með öðrum orðum, hann liggur undir grun um refsivert afbrot í garð skjólstæðings míns. Persónulegri verða hagsmunirnir vart.“

Halldór bætir við að það sé „umhugsunarefni að embætti Héraðssaksóknara skuli ekki telja rétt að fella niður rannsóknina á hendur skjólstæðingi mínum að eigin frumkvæði, eins og nú er komið, enda ljóst að rannsóknin getur með engu móti haft nokkurs konar yfirbragð eða ásýnd hlutleysis við þessar aðstæður“.