Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim sem greindust voru þrír í sóttkví, en fimm ekki.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 41 er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af tveir á gjörgæslu. Í gær voru 42 á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu.
Einn greindist smitaðir á landamærum þar sem niðurstöðu mótefnamælingar er beðið.
187 manns eru nú í einangrun, samanborið við 187 í gær. Þá eru 716 í sóttkví í dag, samanborið við 667 í gær.
Af þeim átta sem greindust í gær, greindust sjö eftir svokallaða einkennasýnatöku en einn eftir sóttkvíar- og handahófsskimun.
Nú hafa 5.392 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir.
Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 38,5 en var 38,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 13,1, en var 14,2 í gær.
Fréttin verður uppfærð.