Átta manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex af þeim sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 34 eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 36 á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.
187 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 197 í gær. Þá eru 261 í sóttkví í dag, samanborið við 460 í gær.
Af þeim átta sem greindust í gær greindust fjórir eftir svokallaða einkennasýnatöku en fjórir eftir sóttkvíar- og handahófsskimun.
Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 46,1 en var 46,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,7, en var 9,5 í gær.
Alls hafa 5.506 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Greint var frá 28. dauðsfallinu af völdum Covid-19 á heimasíðu Landspítala í morgun.
Fréttin verður uppfærð.