Tónlist

vísir/daníel þór
Prikið hefur boðið uppá plötusnúðasett í gluggum sínum undanfarin misseri og bætir nú um betur með röð tónleika í desembermánuði.
Tónleikarnir eru hluti af verkefninu Sköpum Líf í lokun. Síðustu helgi var það Birnir sem hélt uppi stemningunni, en næstur í röðinni er tónlistarmaðurinn Auður sem kemur fram í dag klukkan 16.
Horfa má á útsendinguna hér að neðan.
Tónlist verður flutt innan úr gluggum neðri hæðar Priksins en hljóð verður borið fram á götu, gestir og gangandi hvattir til að doka við og njóta lifandi tónlistar. Gestir og gangandi eru hvattir til að njóta tónlistarinnar og er þeim boðið upp á kaffi eða heitt súkkulaði ef þeir vilja.
Einnig verður viðburðinum streymt á netinu heim í stofu og á útvarpstöðinni FM 94,1 – Útvarp 101.
Tengdar fréttir

Prikið hefur boðið uppá plötusnúðasett í gluggum sínum undanfarin misseri og bætir nú um betur með röð tónleika í desembermánuði.
Fleiri fréttir
Tarot dagsins
Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.