Íslenski boltinn

vísir/bára
Vísir er með beina útsendingu og beina textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem Arnar Þór Viðarsson verður kynntur sem nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Fundurinn hefst klukkan 14:00 en beina útsendingu og textalýsingu má nálgast hér fyrir neðan. Á fundinum sitja Arnar Þór og aðrir fulltrúar KSÍ fyrir svörum.
Knattspyrnusamband Íslands sendi frá sér fréttatilkynningu þess efnis í morgun að Arnar Þór hefði verið ráðinn þjálfari íslenska landsliðsins til næstu tveggja ára.
Honum til aðstoðar verður Eiður Smári Guðjohnsen sem var einnig aðstoðarþjálfari Arnars Þórs hjá U-21 árs landsliðinu.
Fyrstu leikir Íslands undir stjórn Arnars Þórs verða í undankeppni EM í mars á næsta ári.