Lífið

Vísir/Vilhelm
Prikið hefur boðið uppá plötusnúðasett í gluggum sínum undanfarin misseri og bætir nú um betur með röð tónleika í desembermánuði.
Fyrstur á svið er Birnir, en hann kemur fram í dag klukkan 16. Horfa má á útsendinguna hér að neðan.
Verður tónlist flutt innan úr gluggum neðri hæðar Priksins en hljóð verður borið fram á götu, gestir og gangandi hvattir til að doka við og njóta lifandi tónlistar.
Einnig verður viðburðinum streymt á netinu heim í stofu og á útvarpstöðinni FM 94,1 – Útvarp 101
Birni til halds og trausts verður plötusnúðurinn Snorri Ástráðs. Eru tónleikarnir hluti af verkefninu Sköpum Líf í lokun.
Fleiri fréttir
Tarot dagsins
Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.