Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga hófst nú klukkan 16. Fylgjast má með fundinum í beinu streymi hér að neðan.
Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála og gefa íbúum kost á að koma á framfæri fyrirspurnum sem veitt verða svör við á fundinum sé þess kostur.
Hægt verður að leggja inn spurningar á fundinum en einnig má senda inn spurningar fyrir fundinn á netfangið mulathing@mulathing.is.
Á fundinum munu eftirtaldir halda stutt erindi:
Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjórinn á Austurlandi
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Jens Hilmarsson vettvangsstjóri
Harpa Grímsdóttir eða annar starfmaður frá Veðurstofunni
Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannvarnardeild ríkislögreglustjóra
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá almannavörnum