Tvö umferðaóhöpp áttu sér stað um hálf þrjú leytið í dag. Talið er að meiðsl á fólki séu minniháttar.
Þetta staðfestir lögreglan í samtali við mbl.is.
Bílvelta varð á Höfn í Hornafirði þegar tveir bílar lentu í árekstri.
Þá varð slys við nágrenni við Flúðir er ökumaður mótorhjóls datt af því.