Fótbolti
Arnar Geir Halldórsson skrifar

vísir/getty
Áhorfendur fengu allt fyrir peninginn þegar Jagiellonia Bialystok og Warta Poznan mættust í pólsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Leiknum lauk með 4-3 sigri Jagiellonia en staðan í leikhléi var 2-3 fyrir Warta Poznan eftir að heimamenn höfðu komist í 2-1. Sveiflukennt.
Hafnfirðingurinn Böðvar Böðvarsson hóf leik á varamannabekk Jagiellonia en var skipt inn á á 63.mínútu.
Þá var staðan 3-3 og tókst Böðvari að hjálpa sínu liði að innbyrða sigurinn þar sem sigurmarkið kom úr vítaspyrnu á 90.mínútu.
Jagiellonia í sjötta sæti deildarinnar en alls leika sextán lið í pólsku úrvalsdeildinni