Banna Arnarlaxi að fullyrða um sjálfbærni

0
44

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Neytendastofa segir fullyrðingar um sjálfbærni framleiðsunnar óljósar og væri því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum. mbl.is

Neytendastofa hefur bannað fiskeldisfyrirtækisins Arnarlaxi að fullyrða um sjálfbærni í markaðssetningu og vörumerkjum félagsins sem m.a. birtust á vefsíðu félagsins og í öðru auglýsinga- og kynningarefni þess.

Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að það sé álit hennar að „notkun Arnarlax á hugtökunum sjálfbær og sjálfbærni væri almenn og óljós og ekki studd nægilegum gögnum. Markaðssetningin gefi þannig hinum almenna neytanda ranglega til kynna að laxeldi félagsins í sjókvíum væri að fullu sjálfbært og hafi þannig engin eða í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið. Að mati Neytendastofu beri að líta til þess að notkun Arnarlax á fullyrðingum sem innihalda hugtökin sjálfbær og sjálfbærni sé nokkuð víðtæk og áberandi. Notkunin væri tengd við orð- og myndmerki félagsins sem komi fram á vefsíðu félagsins, í blaðaauglýsingum og öðru markaðs- og kynningarefni.“

Á grundvelli þessa hafi Neytendastofa talið að notkun og framsetning þeirra fullyrðinga og orð- og myndmerkja sem um ræddi væri almenn og óljós og væri því villandi og óréttmæt gagnvart neytendum.

Arnarlax rökstuddi notkunina á hugtökunum með því að vísa til þess að „félagið starfi á grundvelli starfs- og rekstrarleyfa frá Umhverfis- og Matvælastofnun sem veitt séu samkvæmt lögum. Þá var vísað til þess að starfsemi félagsins væri vottuð alþjóðlegu vottunarkerfi, ASC, sem taki bæði til umhverfis- og samfélagslegra þátta. Þá hélt félagið því fram að fullyrðingar þess byggist á gögnum og faglegum niðurstöðum óháðra aðila, leyfisveitenda og eftirlitsstjórnvalda. Enn fremur sé það mat félagsins að Neytendastofa hafi ekki heimildir til að krefjast þess að það færi fram sérstaka sönnun fyrir eða afstöðu til þeirra orða sem fram komi í orðhluta vörumerkja félagsins.“

En sem fyrr segir hefur Neytendastofa ekki fallist á rök fiskeldisfyrirtækisins.