Bill Gates segir þetta mikilvægustu þróunina árum saman og muni breyta öllu – DV

0
178

„Á lífsleiðinni hef ég séð tvær tækninýjungar sem ég taldi vera byltingarkenndar.“ Þetta segir Bill Gates, stofnandi Microsoft. Fyrri tækninýjungin kom fram á sjónarsviðið 1980 en hin á síðasta ári.

„Þetta mun breyta því hvernig fólk vinnu, lærir, ferðast, fær heilbrigðisþjónustu og á í samskiptum við hvert annað,“ skrifar hann í nýrri bloggfærslu.

Það sem hann er að tala um er gervigreind eins og ChatGPT sem heillar heiminn þessa dagana.

Gates skrifar að þessi nýja tækni sé gríðarlega mikilvæg og marki tímamót eins og tilurð einkatölvunnar, Internetsins og farsímans.

Gates segist hafa hitt teymið á bak við ChatGPT í fyrsta sinn árið 2016 og hafi fljótt heillast af getu ChatGPT sem hafi þá getað staðist próf og skrifað hugulsöm skilaboð til föðurs sem var með veikt barn.

„Ég vissi þá þegar að ég hafði verið vitni að mikilvægustu tækniþróuninni síðan grafískt notendaviðmót fyrir tölvur kom fram,“ skrifar hann og á þar við tæknina sem leiddi til gerðar stýrikerfa á borð við Windows og Mac OS.