Dauðsföllum af völdum mislinga fjölgaði um 40% á milli 2021 og 2022 – DV

0
6

Vegna þess hversu dró úr bólusetningum við mislingum á tíma heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur mislingatilfellum fjölgað með tilheyrandi fjölgun dauðsfalla og faraldra um allan heim. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO og bandarísku smitsjúdómastofnuninni CDC fjölgaði mislingatilfellum mikið á milli 2021 og 2022.

Í nýrri skýrslu frá CDC kemur fram að smitum hafi fjölgað um 18% á milli 2021 og 2022 eða úr 7,8 milljónum tilfella í 9,2 milljónir.

Á heimsvísu fjölgaði dauðsföllum af völdum mislinga um 45% eða úr 95.000 árið 2021 í 136.200 á síðasta ári. Þeim löndum sem tilkynntu um stóra mislingafaraldra fjölgaði úr 22 árið 2021 í 37 á síðasta ári eða um 68%.

John Vertefeuille, forstjóri alþjóðaónæmisdeildar CDC sagði að fjölgun mislingafaraldra og dauðsfalla af völdum mislinga sé mikil en því miður ekki óvænt ef litið er til minni þátttöku í bólusetningum síðustu árin.

Samkvæmt tölum frá WHO og UNICEF þá dró úr bólusetningum barna með MMR bóluefnablöndunni eftir að heimsfaraldur kórónuveirunnar braust út.  Frá 2000 til 2019 hækkaði hlutfall þeirra barna sem fengu fyrsta skammtinn af MMR úr 72% í 86% á heimsvísu.  Einn skammtur af MMR veiti 93% vörn gegn mislingum og tveir skammtar veita 97% vörn.

Þegar heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á 2020 féll bólusetningarhlutfallið niður í 83% og 2021 fór það niður í 81%. 2022 jókst hlutfallið í 83% en þá voru mörg lönd að ná sér eftir heimsfaraldurinn en í fátækari löndum hélt bólusetningarhlutfallið áfram að dragast saman. 2019 var það 71% í fátækari löndum heimsins, 2021 var það 67% og á síðasta ári 66%.