Flytja fiskikör frá Grindavík til Hafnarfjarðar

0
14

mbl.is/Kristinn Magnússon

Blaðamaður og ljósmyndari mbl.is voru á ferðinni á hafnarsvæðinu í Grindavík í dag þegar verið var að undirbúa flutning á fiskikörum til Hafnarfjarðar vegna löndunar úr Sighvati GK 57, línuskipi Vísis hf. í Grindavík.

Sighvatur er væntanlegur til löndunar í Hafnarfjarðarhöfn síðdegis í dag.

Almannavarnir hafa endurmetið heildaráhættu fyrir bæinn með tilliti til verðmætabjörgunar.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Flutningafyrirtækið Jón og Margeir sá um flutninginn en fyrirtækið sér um nær allan flutning fyrir Vísi hf.

Starfsmaður Vísis hlóð körunum á bílinn.

mbl.is/Kristinn Magnússon