Sam­herji Alberts nálgast Tottenham – Vísir

0
9

Enski boltinn

Sam­herji Alberts nálgast Tottenham Dagur Lárusson skrifar 7. janúar 2024 17:01

Dragusin skoraði gegn Inter nú á dögunum. Vísir/getty Rúmenski varnarmaður Genoa og samherji Alberts Guðmundssonar, Radu Dragusin, nálgast félagsskipti til Tottenham.

Það er ítalski fréttamaðurinn, Fabrizio Romano, sem greinir frá þessu en félögin hafa verið í viðræðum í nokkra daga.

Romano segir að viðræður liðanna séu komnar á lokastig og því má búast við samkomulagi milli liðanna á næstu dögum en leikmaðurinn sjálfur hefur náð samkomulagi við Tottenham.

Tottenham er að byrja janúargluggann með látum en í gær var það staðfest að þýski framherjinn, Timo Werner, sé á leið til félagsins á láni.

Understand Tottenham had new positive contacts with Genoa for Radu Dragusin deal!

Deal advancing to final stages of the negotiations.

Spurs hope to get the deal done next week as talks continue, it s all on verbal proposals waiting for the final, official bid. pic.twitter.com/geRWHrKOHM

— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 7, 2024 Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira Mest lesið