Daniel segir að flöskutrixið geti sagt til um hvort makinn haldi framhjá – DV

0
107

Það er líklega fátt sem hefur eins slæm áhrif á ástarsambönd og þegar sá grunur læðist að öðrum hvorum, eða jafnvel báðum aðilum, að makinn sé að halda áfram. Það getur verið erfitt að ákveða hvernig á að vinna úr þessum grun. Margir enda með að leika leynilöggu í þeirri von að geta fundið sannanir fyrir meintu framhjáhaldi makans áður en málið er tekið upp við viðkomandi.

En Daniel Hentschel, sem býr í Los Angeles, hefur ákveðið ráð um hvernig sé hægt að komast að því hvort makinn sé að halda framhjá.

Mirror segir að hann segi að byrja eigi á að verða sér úti um „notaða vatnsflösku“. Hún má alveg eins koma úr verslun sem selur notaða hluti því þá getur kaupandinn verið viss um að hún sé notuð.

Hann segir að best sé að finna flösku sem geti „fræðilega séð tilheyrt hverjum sem er“ og hann leggur áherslu á að þessi aðferð virki bara ef makinn trúir því að flaskan sé annað hvort hans eða þín eign.

„Láttu eins og þú finnir hana í bílnum ykkar. Segðu þessa setningu: „Hérna er vatnsflaskan þín,“ segir hann í myndbandi, sem hann birti á TikTok.

„Ef viðkomandi hefur ekkert að fela segir hann eða hún: „Þetta er ekki flaskan mín. Ég veit ekki hver á hana. Viðkomandi játar að hann eða hún veit ekki hver á flöskuna af því að þú hefur fengið viðkomandi til að finnast að þú treystir honum/henni. En ef viðkomandi er að halda framhjá, mun hann/hún samstundis láta sem flaskan sé hans/hennar,“ segir hann.

Margir hylla þessa aðferð hans í athugasemdakerfinu og segja hana vera algjöra snilld.