Dró játningu skyndilega til baka Alexander Máni mætir í héraðsdóm við þingfestingu málsins. Vísir/Vilhelm Alexander Máni Björnsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps í Bankastræti-Club málinu svonefnda, hefur dregið aðra játningu af tveimur fyrir hnífsstungu til baka. Það gerði hann við upphaf þinghalds í Gullhömrum í morgun.
Mbl.is greinir frá. Skýrslutökur í málinu fóru fram í síðustu viku og lauk á föstudaginn þegar lögregluþjónar komu fyrir dóminn.
Alexander Máni, sem er ákærður fyrir þrjár tilraunir til manndráps, hafði játað að hafa stungið tvo af þreimur brotaþolum á skemmtistaðnum í nóvember í fyrra. Hann dró til baka játningu í tilfelli fórnarlambs sem fékk hnífsstungu í lærið og slagæð fór í sundur.
Sigríður Hjaltested dómari í málinu sagði það óvirðingu við réttinn að breyta afstöðu sinni á síðustu stundu. Ómar Valdimarsson, verjandi Alexanders Mána, sagði afstöðu skjólstæðings síns hafa breyst í gærkvöldi.
Hlé var gert á þinghaldi en næst á dagskrá er málflutningur Dagmarar Aspar Vésteinsdóttur saksóknara hjá héraðssaksóknara. Svo tekur við málflutningur verjenda í málinu sem eru á þriðja tug.
Tengdar fréttir „Ég vissi ekki að hann væri alvitur“ Rannsóknarlögreglumaður, sem stýrði rannsókn á hnífstunguárásinni á Bankastræti Club, fullyrti þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í dag að aðeins einum hníf hafi verið beitt í árásinni. „Ég vissi ekki að hann væri alvitur,“ sagði verjandi manns, sem ákærður er fyrir þrjár tilraunir til manndráps, en dró ummælin síðar til baka.
29. september 2023 15:46
Kannast hvorki við „Latino-hópinn“ né meinta vargöld Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga.
29. september 2023 07:00
Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.
28. september 2023 18:01
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.
Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira