Innlent | Kosningar | mbl | 26.3.2022 | 22:36
Eyþór Harðarson stendur efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þegar 595 atkvæði hafa verið talin, með 392 atkvæði. Í öðru sæti er Hildur Sólveig Sigurðardóttir með 323 atkvæði.
Í þriðja sæti er Gísli Stefánsson með 246 atkvæði. Í fjórða sæti er Margrét Rós Ingólfsdóttir með 304 atkvæði og í fimmta sæti er Rut Haraldsdóttir með 474 atkvæði. Áætlað er að næstu tölur verði lokatölur.
Röð efstu átta þegar 595 atkvæði hafa verið talin:
- Eyþór Harðarson með 392 atkvæði
- Hildur Sólveig Sigurðardóttir með 323 atkvæði í 1.-2. sæti
- Gísli Stefánsson með 246 atkvæði í 1.-3. sæti
- Margrét Rós Ingólfsdóttir með 304 atkvæði í 1.-4. sæti
- Rut Haraldsdóttir með 474 atkvæði í 1.-5. sæti
- Sæunn Magnúsdóttir með 353 atkvæði í 1.-6. sæti
- Óskar Jósúason með með 297 atkvæði í 1.-7. sæti
- Halla Björk Hallgrímsdóttir með 284 atkvæði í 1.-8. sæti