Anthony Fauci, helsti sérfræðingur Bandaríkjamanna þegar kemur að sóttvörnum og kórónuveirunni óttast að í kjölfar þakkargjörðarhátíðarinnar skelli nokkrar bylgjur veirunnar á landinu.
Anthony Fauci, helsti sérfræðingur Bandaríkjamanna þegar kemur að sóttvörnum og kórónuveirunni óttast að í kjölfar þakkargjörðarhátíðarinnar, sem haldin var um helgina, skelli bylgja eftir bylgju á landsmönnum þegar kemur að kórónuveirusmitum.
Hann biðlar til þeirra sem létu varnaðarorð sem vind um eyru þjóta og lögðust í ferðalög, að gæta ítrustu varúðar á leiðinni heim og eftir að heim er komið. Tilfelli veirunnar í Bandaríkjunum eru nú orðin fleiri en þrettán milljónir og 266 þúsund manns hafa látið lífið.
Aðeins í nóvembermánuði hafa fjórar milljónir manna smitast, sem er tvöfalt hærri tala en var í október. Þegar stærsta ferðahelgi ársins þar vestra blandast saman við þetta ástand er væntanlega ekki von á góðu, en um ein milljón manna fór um flugvelli landsins á hverjum degi í vikunni sem var að líða.