Fiskiskipum fækkaði um 332

0
138

Fjöldi íslenskra fiskiskipa var á síðasta ári 1.540. Það er 332 færri en fyrir tveimur áratugum. mbl.is/Árni Sæberg

Á síðasta ári voru skráð 1.540 íslensk fiskiskip, þar af 813 opnir bátar, 685 vélskip og 42 togarar. Fækkaði fiskiskipunum um níu frá árinu 2021 en þeim hefur fækkað um rúmlega þrjú hundruð á undanförnum tveimur áratugum, að því er fram kemur í Morgublaðinu.

Sérstaka athygli vekur að meðalaldur opinna báta hefur haldið áfram að hækka þrátt fyrir fjölgun og var meðalaldur þeirra 34 ár í fyrra og hefur aldrei verið hærri, en tölur á vef Hagstofunnar ná aðeins aftur til ársins 2003.

Meðalaldur vélskipa hefur heldur ekki verið hærri og var aldur vélskipa í fyrra 29 ár. Fjöldi þeirra stundar einnig veiðar sem eru bundnar við ákveðnar veiðiaðferðir og veiðarfæri svo sem neta- og línuveiðar.

Meðalaldur togara náði hámarki 2016 þegar hann var 30 ár en hefur síðan lækkað ört og var á síðasta ári 22 ár. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í togaraflota landsins og hefur þeim samhliða fækkað enda eru afköst nýjustu togaranna meiri en þeirra sem eldri eru.

Lesa má umfjöllunina í heild í Morgunblaðinu í dag.