„Flokkur fólksins hefur undanfarið verið í umfangsmiklu stefnumótunarferli og samhliða því var ráðist í breytingar á ásýnd flokksins,“ segir í tilkynningu frá Flokki fólksins.
Nýtt heildarútlit er á öllu kynningarefni flokksins og er merki flokksins meðal þess sem mun breytast.
Segir í tilkynningunni að meginmarkmiðið sé að flokkurinn „haldi áfram að vekja athygli allra á baráttu sinni gegn fátækt og óréttlæti í íslensku samfélagi.“
„Aðal litur flokksins verður gulur, sem er hlýr og bjartur. Hann líkir eftir sólinni, er vonarneisti og boð um betri tíma. Hann er nær gildum flokksins sem snúa að velferð og stendur upp úr, hvar sem hann er. Samhliða gula litnum verður svarfjólublár notaður og bleikur þegar á við, en hann er skírskotun í rætur flokksins,“ segir í tilkynningunni.
Friðardúfan verður áfram merki flokksins en þó með endurbætti útliti. Vængir dúfunnar mynda nú tvö „F“ sem standa fyrir nafn flokksins.
Þá á nýtt og auðlesanlegt letur að endurspegla þá hugsjón að flokkurinn vill tala til allra, ekki síst til þeirra sem eldri eru.