Stuðst verður við forval við val á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþinggiskosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum nú í kvöld.
Kjördæmisráð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi ákvað þetta á fundi sínum í gær.
Samkvæmt tilkynningu flokksins var efnt til atkvæðagreiðslu um málið og var mikill meirihluti fundarmanna fylgjandi þeirri leið að hafa forval en ekki uppstillingu á framboðslistann. Nú þegar hafa nokkrir lýst vilja sínum til að skipa efstu sæti listans. Síðast var stuðst við uppstillingu.
„Núverandi þingmaður VG í Suðurkjördæmi Ari Trausti Guðmundsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs, en hann stýrði fundi kjördæmisráðs í kvöld. Kosin var kjörstjórn á fundinum sem hittist á fyrsta fundi í næstu viku og skiptir með sér verkum, en hana skipa fulltrúar tilnefndir af formönnum svæðisfélaga VG í kjördæminu,“ segir í tilkynningunni.