Fréttamaður mætti með konuna í vinnuna – Fór með hana á staði sem gætu kostað hann starfið – DV

0
174

Fréttamaður hjá Sky í Englandi er í klandri eftir að hafa laumaði konunni með sér í vinnuna á dögunum. Maðurinn var að starfa við leik í ensku úrvalsdeildinni.

Maðurinn ákvað að taka konuna með sér í vinnu og fara með hana inn í klefa hjá ónefndu félagi í ensku úrvalsdeildinni.

Starfsmaður á vellinum kom að fólkinu þar sem það var að skoða sig um. Sky neitar að tjá sig um málið.

Starfsmaður Sky hafði ekkert leyfi til þess að valsa um völlinn og fara inn í klefa liðsins samkvæmt frétt Daily Mail.

Sky er bæði með starfandi sjónvarpsmenn á völlum landsins og blaðamenn sem skrifa á vef fyrirtækisins. Líkur eru á að starfsmanninum verði refsað og segir í fréttum að þetta ákveðna félag gæti bannað hann frá heimavelli félagsins.

Þá er það ekki sagt útilokað að Sky hreinlega reki manninn úr starfi.

Enski boltinn á 433 er í boði