Í dag er síðasti dagurinn sem Friðarsúla Yoko Ono í Viðey logar fram að vetrarsólstöðum 21. desember. Listaverkið tileinkaði Yoko Ono eiginmanni sínum, tónlistarmanninum John Lennon. Friðarsúlan er tendruð á fæðingardegi hans, 9. október ár hvert og slökkt á henni 8. desember, en þá er þess minnst að Johns Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York. Í dag eru 40 ár frá morðinu á Lennon.
Venju samkvæmt verður Friðarsúlan tendruð að nýju mánudaginn 21. desember á vetrarsólstöðum.
„Í ljósi aðstæðna í heiminum hefur verið ákveðið að í stað þess að slökkva á geislum súlunnar þegar nýtt ár hefur gengið í garð lýsi Friðarsúlan upp skammdegið allt fram á jafndægur á vori í mars á næsta ári,“ segir í fréttatilkynningu.