Innlent
| mbl
| 26.11.2020
| 19:15
Samningafundi flugvirkja og samninganefndar ríkisins var slitið nú í kvöld. Heimildir mbl.is herma að annar fundur hafi ekki verið boðaður. Þá sé deilan á mjög erfiðum stað, en fundur dagsins stóð yfir í tíu klukkustundir.
Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni hafa verið í verkfalli frá 5. nóvember, en verkfallið hefur áhrif á þyrluflota gæslunnar. Engin þyrla hefur verið tiltæk frá því á miðnætti.