0.8 C
Reykjavik
Mánudagur 27 mars 2023

Gæti aukið arðsemina í íslenskum sjávarútvegi

Related stories

spot_img

Sigmar Guðbjörnsson er þekktur um heim allan fyrir hugvit sitt. Kristinn Magnússon

Sigmar Guðbjörnsson hafði unnið að þróun nýrrar tækni fyrir farsíma í Danmörku þegar hann stofnaði fyrirtækið Stjörnu-Odda árið 1985.

Eftir að hafa þróað vörur sem meðal annars japanska fyrirtækið Panasonic notaði við smíði farsíma flutti hann heim með fjölskyldu sinni og hóf að byggja upp fyrir­tækið á Íslandi.

Fljótlega eftir heimkomuna fór Sigmar að einbeita sér að þróun lítilla mælitækja sem voru meðal annars notuð við rannsóknir á hrygningarþorski við Ísland.

Samstarf við NASA Sigmar og samstarfsmenn hafa síðan þróað fleiri vörur og hefur Stjörnu-Oddi meðal annars átt í samstarfi við Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, og velgjörðarsjóð Melindu og Bill Gates.

Meðal nýjunga hjá fyrirtækinu er þróun búnaðar sem gæti aukið arðsemi í íslenskum sjávarútvegi.

Sér fiskinn í rauntíma „Við erum að prófa búnað fyrir veiðarfæri á fiskiskipum, nánar tiltekið troll. Frumgerð hans verður prófuð hjá Brimi síðar í þessum mánuði. Með honum mun skipstjórinn geta séð fiskana koma inn í trollið í rauntíma en búnaðurinn er með gervigreind sem greinir tegundir og stærð fiska,“ segir Sigmar en ítarlega er rætt við hann í blaði dagsins.

Lesa má ítarlegt viðtal við Sigmar í ViðskiptaMogganum sem kom út í gær.

Nýjast

spot_img