-0.2 C
Reykjavik
Mánudagur 27 mars 2023

Hægðatregða, þemba og niðurgangur eru meðal einkenna langvarandi COVID – DV

Related stories

spot_img

Allt frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur fólk skýrt frá langvarandi veikindum í kjölfar smits og hafa einkennin verið margvísleg. Allt frá þunglyndi til hármissis og skemmda á líffærum. Ný rannsókn bendir til að veiran geti einnig gert fólk viðkvæmara fyrir ýmsum vandamálum tengdum þörmunum. Sky News skýrir frá þessu og segir að samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þá geti COVID-19 valdið langvarandi vandamálum  á borð við hægðatregðu, þembu og niðurgangs.

Hefur fólk glímt við slík einkenni í allt að ár eftir smit.

Um bandaríska rannsókn er að ræða og náði hún til um 11,6 milljóna manna. 154.000 þeirra smituðust af kórónuveirunni frá því í mars 2020 þar til í janúar 2021.

Var heilsufar þeirra borið saman við heilsufar 5,6 milljóna sem greindust ekki með veiruna á þessu tímabili og niðurstöður rannsókna á 5,8 milljónum manna en þær rannsóknir voru gerðar áður en faraldurinn skall á.

Niðurstaðan er að þeir sem fengu veiruna glímdu frekar við vandræði tengd þörmum og meltingarkerfi ári eftir smit en þeir sem höfðu ekki smitast af veirunni. Það sama átti við þá sem voru rannsakaðir áður en faraldurinn skall á.

Nýjast

spot_img