Hættulegir augndropar í umferð – Hafa orðið þremur að bana – DV

0
219

Að minnsta kosti 68 hafa orðið fyrir eitrunaráhrifum, þrjú dauðsföll hafa verið staðfest, átta hafa misst sjónina og fjórir hafa neyðst til að láta fjarlægja auga. Þetta er afleiðing af því að hafa notað mengaða augndropa frá EzriCare og Delsam Pharma. Þessir augndropar eru ekki lyfseðilsskyldir í Bandaríkjunum.

Droparnir voru teknir af markaði í febrúar. Eitrunartilvik hafa verið staðfest í 16 ríkjum að sögn bandarísku smitsjúkdómastofnunarinnar, CDC.

Droparnir eru framleiddi í Indlandi. Talið er að þeir innihaldi afbrigði af veirunni pseudomonas aeruginosa en þetta afbrigði hefur aldrei áður fundist í Bandaríkjunum.

CDC hefur ekki skýrt frá í hvaða ríkjum eitrunartilfelli hafa komið upp en flest bendir til að eitt, að minnsta kosti, hafi komið upp í Flórída. Clara Oliva, 68 ára, notaði dropa frá EzriCare og missti annað augað. Hún ætlar nú að lögsækja fyrirtækið og krefjast bóta að sögn New York Post.