Hafa á­huga á að fá Greenwood til liðs við sig – Vísir

0
59

Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2023 11:00

Mason Greenwood, leikmaður Manchester United  Ítalska stór­veldið Juventus hefur á­huga á því að fá Mason Greenwood, sóknar­mann Manchester United, til liðs við sig. 

Greint er frá vendingunum í breskum miðlum í morgun en Greenwood hefur hvorki æft né spilað fyrir Manchester United eftir að hann var hand­tekinn snemma árs 2022.

Allar á­kærur á hendur Greenwood, sem sneru meðal annars að meintri til­raun til nauðgunar, líkams­á­rás og þvingunar­til­burðum, voru felldar niður í febrúar fyrr á þessu ári.

Eftir að það varð ljóst setti Manchester United af stað rann­sókn hjá sér innan­húss á málinu og að á meðan hún væri í gangi yrðu næstu skref er varðar leik­manninn ekki tekin.

Sam­kvæmt breskum miðlum hafa for­ráða­menn Juventus sett sig í sam­band við full­trúa Greenwood og viðrað þann mögu­leika að gera lang­tíma láns­samning við Manchester United og leik­manninn.

Nú­gildandi samningur Greenwood við Manchester Unti­ed gildir til sumarsins 2025. Goal hefur það eftir heimildar­mönnum sínum, sem þekkja vel til Greenwood, að leik­maðurinn sjái sæng sína hjá Manchester United, hann búist ekki við því að spila aftur fyrir fé­lagið.

Auk Juventus er A.C. Milan einnig sagt hafa auga­stað á leik­manninum.

Greenwood ólst upp í akademíu Manchester Unti­ed og í júlí árið 2019 var hann tekinn inn í aðal­lið fé­lagsins í fyrsta sinn.

Hann á nú að baki 129 leiki fyrir aðal­liðið, hefur skorað 35 mörk í þeim leikjum og gefið 12 stoð­sendingar.

Tengdar fréttir Greenwood tjáir sig í fyrsta sinn: Mikill léttir að málinu sé loks lokið Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að allar ákærur á hendur honum voru felldar niður. Hann segir mikinn létti að málinu sé lokið.

3. febrúar 2023 07:31

Biður leik­menn um að ein­beita sér að fót­bolta en ekki Greenwood Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, biður leikmenn liðsins um að einbeita sér að fótbolta frekar en Mason Greenwod eftir að ákæra á hendur leikmanninum var látin niður falla í gær.

3. febrúar 2023 23:31

Nike vill ekkert með Greenwood hafa Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur ekki fengið nýjan samning við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike þrátt fyrir að hann hafi ýjað að því.

7. febrúar 2023 14:00

Manchester United sagt ætla að spyrja leikmenn um framtíð Greenwood Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er laus allra mála eftir að málið gegn honum var fellt niður en nú þarf Manchester United að ákveða hvað félagið ætlar að gera með einn efnilegasta leikmann félagsins.

16. febrúar 2023 10:31

Greenwood laus allra mála Allar ákærur á hendur Mason Greenwood hafa verið felldar niður, rúmu ári eftir að þessi 21 árs gamli leikmaður Manchester United var handtekinn grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði.

2. febrúar 2023 14:29

Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira