Söngkonan Karítas Harpa Davíðsdóttir á von á sínu þriðja barni, er að gefa út nýja plötu í janúar og telur niður til jóla með jólalagadagatali á Facebook. Hún deildi nýlega með okkur hvað hún borðar á venjulegum degi, hér deilir hún með okkur uppskrift af ljúffengri vínartertu.
Sjá einnig: Þetta borðar Karítas Harpa á venjulegum degi

Hvít terta (Vínarterta)
„Svona þar sem við erum dottin í jólaundirbúninginn og baksturinn langar mig svo að deila með ykkur lagkökuuppskrift sem við Aron hentum í einmitt um daginn, saman, þegar strákarnir voru sofnaðir, ekki heppnaðist hún bara svona ljómandi vel (betur en við þorðum að vona) heldur varð úr þessu heilmikil bakstursgæðastund hjá okkur parinu,“ segir Karítas Harpa.
Hráefni:
1 kg hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. hjartarsalt
500 g smjör
500 g sykur
5-6 egg
Smá vanilla ef vill
Sulta
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Hnoðið deig og skiptið í fjóra jafna bita, best að vigta og kæla.
- Breiðið síðan deigið út á plötur með bökunarpappír á. Bakið við 200°C í ca. 15 mín. Passið að botnarnir verði ekki of dökkir.
- Gott er að leyfa þessu aðeins að kólna eftir ofninn og leggja síðan botnana saman með sultu á milli laga (klassík að hafa rabbarbarasultuna).
- Pakkið tertunni í plast og bíðið í sólarhring til að hún mýkist áður en hún er skorin í bita, pakkað og fryst.
- Verði ykkur að góðu.