Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra sannkallaðri fjölskyldugleði hér á mbl.is þegar þau færa landsmönnum sjóðandi heitar bingótölur beint heim í stofu. Fjöldi vinninga er í boði og allir sem fá BINGÓ fá vinning.
Tónlistarmaðurinn Auður, verður sérstakur gestur í þætti kvöldsins og hægt er að nálgast útsendinguna neðst í þessari frétt.
Við minnum á sérstaka myndaleikinn sem verður í kvöld en með því að deila skemmtilegri mynd af þér og þínum að taka þátt í bingóinu og merkja hana með myllumerkinu #mblbingo getur þú unnið þér inn Samsung Galaxy Buds Live, þráðlaus heyrnartól að andvirði 39.995 krónur.
Sjá einnig: Skemmtilegasta myndin fær verðlaun í kvöld
Leikreglur, bingóspjöld og útsendinguna má nálgast með því að smella hér.
Bein útsending hefst núna klukkan 19:00 og hægt er að fylgjast með henni hér og á rás 9 hjá Símanum: