Þann 20. febrúar lést karlmaður frá Charlotte County í Flórída af völdum hinnar banvænu amöbu Naegleria fowleri. Bandaríska smitsjúkdómastofnunin, CDC, segir líklegt að maðurinn hafi fengið amöbuna þegar hann skolaði nefholur sínar undir rennandi vatni úr krananum.
Unilad skýrir frá þessu og segir að CDC hafi borist tilkynning um andlát mannsins þremur dögum eftir það. Maðurinn er sagður hafa skolað nefholur sínar daglega með ósoðnu kranavatni. Er talið að þaðan hafi amaban borist í hann.
Í tilkynningu frá CDC segir að stofnunin aðstoði heilbrigðismálaráðuneyti Flórída við rannsókn málsins. Þetta sé fyrst staðfesti tilfelli Naegleria fowleri sýkingar í Bandaríkjunum á þessu ári og það fyrsta sem tilkynnt hefur verið um að vetrarlagi.
Nokkrir deyja árlega af völdum Naegleria fowleri í Bandaríkjunum. Flestir eftir að hafa synt í vötnum og ám.
Af þeim sem smitast látast 97%. Flestir hafa látist í Flórída, frá því að skráning hófst 1962, eða 37 í heildina.
CDC segir að mjög sjaldgæft sé að fólk smitist af kranavatni og ráðleggur fólki að nota soðið eða eimað vatn sem búið er að kæla.
Amöburnar vinna hratt og éta heilavefinn og verða fólki þannig að bana. Helstu einkennin eru höfuðverkur, uppköst og ógleði. Síðan taka við stífir liðir, krampar og vitræn vandamál.