Barcelona pakkaði verðandi meisturum Real Madríd saman fyrir landsleikjahlé. Nú er komið að liðinu sem situr í 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Með sigri jafna Börsungar gestina að stigum og virðast bjartir tímar framundan í Katalóníu. Leikurinn hefst klukkan 19.00.