Yfirvöld hér heima fylgja fyrirmælum og handriti WHO (Alþjóðaheilbrigðisstofunarinnar). Fyrir stuttu setti ég hér inn á bloggið Covid reglur fyrir jólin sem voru í takt við tilmæli Kaliforníufylkis fyrir Þakkargjörðarhátíðina.
Nú er Rögnvaldur sem ekki hlýddi Víði nægilega vel (ekki frekar en Víðir sjálfur og hans eiginkona) að leggja drögin að drepleiðinlegum jólum. Nóg að skoða fréttir í dag og gær og svo þessa:
„…núna þarf að taka aðventuna með sama hætti, segir hann og nefnir sem dæmi að fólk eigi að sleppa sameiginlegri laufabrauðsgerð og að hittast saman og baka smákökur.
Kanada er komið lengra í WHO handritinu og þar mega engar tvær fjölskyldur (households) koma saman. Það nýjasta hjá Kanadamönnum eru leiðbeiningar frá Toronto Public Health um kynlíf fólks. Vera með grímur, sjálfsfróun er öruggari en samfarir o.fl. Sem sagt, undirbúið ykkur fyrir fámenn og ströng jól. Munum að það átti að loka landinu til að lífið gæti orðið eðlilegt og framhaldsskólar gætu opnað. Þeir hafa ekki enn opnað. Og síðustu vikur áttu allir að hlýða Víði til að jólin gætu orðið eðlileg. En nei, það verða þau ekki. Reglurnar frá WHO eru komnar inn á borð til Ölmu. Og verða eitthvað í takt við þær sem ég setti inn hér ofar.