Jónas er hættur að reykja…!
- by fg
- 12 Years ago
- Comments Off
Þau stórtíðindi bárust hingað um borð í gegnum samskiptavefinn Facebook að okkar ástsæli Jónas Eyjólfur Jónasson hefði tekið þá afdrifaríku ákvörðun að hætta að reykja. Brutust út mikil fagnaðarlæti meðal skipverja því menn sjá fram á mun betra loft í stakkageymslunni hér eftir. Eitt er víst að allir munu skipverjarnir styðja Jonna í þessu gríðarlega átaki og óskum við honum velfarnaðar….