Föstudagur 03.nóvember 2023
Mynd: Heimkaup
Virkilega bragðgóður og skemmtilegur réttur sem allir viðstaddir, hvort sem er börn eða fullorðnir fengu ekki nóg af. Flestir eru sammála um að kjúklingur og pasta fari vel saman, hérna spilar þetta dúó með dásamlegri sósu og grænmeti.
Hráefni 700 g Kjúklingabringur 1 Græn paprika 1 geiralaus hvítlaukur 1 Laukur 300 g Gulrætur 250 g Sveppir 1/2 Piparostur 400 g Niðursoðnir tómatar 680 g Tómatpassata 60 g Grænt pestó 1 stk Grænmetiskraftur 2 stk Kjúklingakraftur Lasagnablöð 200 g Mozzarella, rifinn 50 g Piparostur, rifinn 2 msk Ólífuolía 1 msk Oregano 1 msk Ítalinn 1 stk Salt 1 stk Pipar Leiðbeiningar Saxið smátt eða setjið í matvinnsluvél: papriku, hvítlauk, lauk, gulrætur, sveppi og piparost og steikið í frekar stórum potti. Bætið tómötum, passata, pestó og kryddum út í og látið malla í 5 mín. Bætið kjúkling út í og látið malla aðeins áfram. Hitið ofn í 190°C Raðið í standard stærð af ferköntuðu lasagna eldföstu móti: Fyrst kássa, svo lasagnablöð o.frv. Látið efsta lagið vera kássu og stráið mozzarellaosti og rifnum piparosti yfir Bakið í 40 mín. Berið fram með góðu salati og hvítlauksbrauði Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.
Fleiri fréttir Mest lesið Nýlegt