Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir kunningja sinn hafa grætt tíu milljónir á örfáum klukkutímum vegna sölunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka til fagfjárfesta.
Páll birti „Sögu af bankasölu“ á Facebook síðu sinni fyrr í dag þar sem hann segir vel stæðan kunningja sinn hafa fengið símtal. Hann hafi verið spurður hvort hann vildi ekki taka „snöggan snúning á Íslandsbanka,“ enda gæti hann líklega grætt tíu milljónir á örfáum klukkutímum.
„Sá sem hringdi var vinur kunningja míns og starfsmaður hjá einum af söluaðilum bréfanna. Þetta þótti kunningja mínum stórsniðugt og keypti um milljón hluti á 117 krónur – 5 króna afsláttur frá síðasta skráða markaðsgengi sem var 122,“ segir Páll í færslunni.
Hann bætir við að kunninginn hafi selt bréfin morguninn eftir kaup – á 127 krónur á hlut. Kunningi hans hafi grætt um tíu milljónir á símtölunum, tæplega eina og hálfa milljón á klukkutíma, á meðan hann svaf.
„Um svipað leyti og þessi kunningi minn fékk tilboð um að kaupa á 117 krónur – var hafnað tilboði frá stórum lífeyrissjóði sem vildi kaupa fyrir meira en 10 milljarða króna á genginu 122 krónur. Þurfti sem sagt engan afslátt – hefði keypt þótt hann væri ekki í boði,“ segir Páll.
„Svo komu menn hver um annan þveran; fjármálaráðherrann, Bankasýsluforingjarnir og jafnvel nokkrir þingmenn og útskýrðu fyrir okkur einfeldningunum hvað þetta hefði verið gríðarlega vel heppnað útboð. Einmitt,“ heldur hann áfram.