Handbolti
Lærisveinar Hannesar tryggðu sér austurríska bikarmeistaratitilinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. apríl 2023 11:00
Hannes Jón Jónsson er á sínu öðru ári sem þjálfari Alpla Hard. Vísir/Getty Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard tryggðu sér austurríska bikarmeistaratitilinn í gær með öruggum sex marka sigri í úrslitum gegn Füchse, 33-27.
Alpla Hard vann nauman eins marks sigur gegn West Wien í undanúrslitum á föstudaginn, 24-23, en sigur liðsins í gær var mun öruggari.
Liðið skoraði fyrsta mark leiksins og leiddi nánast hverja einustu sekúndu eftir það. Alpla Hard náði mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik, en munurinn var þó aðeins eitt mark þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 16-15.
Lærisveinar Hannesar tóku svo völdin á ný í síðari hálfleik og sigldu að lokum heim nokkuð öruggum sex marka sigri, 33-27, og bikarmeistaratitillinn í höfn. Þetta var fyrsti stóri titill Alpla Hard undir stjórn Hannesar, en hann tók við þjálfun liðsins sumarið 2021.
Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira Mest lesið