Innlent

Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19.
Frá þessu er greint á vef spítalans þar sem aðstandendum þess látna er vottuð samúð.
Alls hafa 28 látist vegna Covid-19 hér á landi síðan faraldurinn hófst í lok febrúar. Tíu manns létust í fyrstu bylgju faraldursins og átján manns hafa nú látist í þeirri þriðju.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.