Innlent
| mbl
| 8.12.2020
| 8:32
| Uppfært
8:48
Einn sjúklingur lést af völdum Covid-19 á Landspítalanum síðasta sólarhringinn. Því hafa 28 látist af völdum farsóttarinnar hér á landi, þar af 18 í þriðju bylgju. Síðast var tilkynnt um andlát af völdum Covid-19 þann 1. desember.
Af þeim 18 sem hafa látist síðustu mánuði voru 17 sjúklingar á Landspítalanum en einn var á Sólvöllum – heimili aldraðra á Eyrarbakka. Langflest dauðsfallanna tengjast hópsmiti tengdu Landakoti.