Diogo Jota hefur byrjað tímabilið frábærlega með Englandsmeisturum Liverpool en hann gæti nú misst af leik liðsins um helgina vegna meiðsla á hné.
Jota spilaði nær allan leikinn í 1-1 jafnteflinu gegn Midtjylland í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, hefur gagnrýnt leikjaálag ensku stórliðanna undanfarið en spilaði þó nokkrum af sínum sterkustu mönnum í leik vikunnar.
Leikurinn skipti Liverpool engu máli hvað varðar stöðu í riðlinum en liðið var þegar búið að tryggja sér toppsætið og þar með sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Undir lok leiks gegn Midtjylland haltraði Jota svo af velli vegna meiðsla á hné og nú er óvíst að hann nái leik Liverpool gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Staðarblaðið Liverpool Echo telur það öruggt að Portúgalinn verði ekki með. Vefsíðan Physio Room – sem heldur utan um öll meiðsli leikmanna í ensku úrvalsdeildinni – telur hins vegar um 50 prósent líkur að vængmaðurinn knái verði með Liverpool á morgun.
Jota er sem stendur einn níu leikmanna sem er annað hvort tæpur eða meiddur á þessari stundu. Markvörðurinn Alisson hefur misst af síðustu þremur leikjum en það hefur ekki komið að sök þar sem Caoimhín Kelleher hefur staðið sig með prýði. Brasinn gæti snúið aftur í markið á morgun.
Alex Oxlade-Chamberlain er byrjaður að æfa að nýju eftir meiðsli á hné og gæti hann jafnvel verið í hóp á morgun. Aðrir leikmenn eru meiddir til lengri tíma og þar má nefna Thiago Alcântara, Virgil van Dijk, James Milner, Xerdan Shaqiri, Joe Gomez og Konstantinos Tsimikas.
Liverpool er sem stendur í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 24 stig að loknum 11 umferðum. Tottenham Hotspur er á toppi deildarinnar með jafn mörg stig en betri markatölu.