Sport
Þó svo að flestum finnist það óbærilegt að hugsa til þess að maður sé að fara að hlaupa í kringum hundrað kílómetra þá voru flestir skælbrosandi við upphaf hlaupsins í gær. Birkir Már Kristinsson Um helgina fór fram hlaupakeppnin Bakgarður 101 í Öskjuhlíðinni. 150 manns tóku þátt en þetta var í annað skiptið sem keppnin er haldin.
Hlaupið var um stíga Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur og var hringurinn 6,7 kílómetrar. Keppendur lögðu af stað á heila tímanum og stendur hlaupið yfir þar til einn hlaupari er eftir. Þegar þetta er skrifað eru tveir keppendur eftir og hafa þeir verið hlaupandi í þrjátíu klukkustundir.
Birkir Már Kristinsson, framkvæmdastjóri Náttúruhlaupa, tók nokkrar myndir af keppendum í gær.
Fólk var skælbrosandi við upphaf hlaupsins.Birkir Már Kristinsson Rakel María Hjaltadóttir og Mari Järsk stóðu sig vel í gær.Birkir Már Kristinsson Kristinn Gunnar á ferð og flugi. Hann er einn af tveimur sem enn hleypur.Birkir Már Kristinsson Guðjón er líka enn að hlaupa.Birkir Már Kristinsson Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir úr hlaupinu.
Mest lesið
Fleiri fréttir Sjá meira Mest lesið