Bergur og Vestmannaey í höfn í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Arnar Richardsson
„Aflinn var rúmlega 45 tonn og var um að ræða gullkarfa og djúpkarfa til helminga. Þetta fékkst á Sneiðinni og á milli Gjáa. Menn voru mjög sáttir við túrinn. Það var bræla í upphafi hans en síðan lagaðist veðrið og var hið ágætasta,“ segir Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi VE, í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
Bergur landaði í Vestmannaeyjum síðastliðinn þriðjudag en Vestmannaey VE landaði 65 tonnum á miðvikudag.
Fram kemur að afli Vestmannaeyjar hafi mestmegnis verið ýsa sem fékkst í Skeiðarárdýpinu, á Öræfagrunni og í Breiðamerkurdýpi. Að sögn Birgis Þórs Sverrissonar, skipstjóra á Vestmannaey, var fiskurinn hinn fallegasti.
Bæði Bergur og Vestmannaey héldu til veiða klukkan átta í morgun, en hrygningarhólfin á vestursvæði sem hafa verið lokuð í um tvær vikur eru nú að opnast.