Neita að borga Manchester City upphæðina – Annað lið kemur óvænt til greina – DV

0
129

Laugardagur 08.apríl 2023

Cancelo í viðtali eftir leik / Mynd: Skjáskot

Bayern Munchen mun hafna því að borga Manchester City 70 milljónir evra fyrir bakvörðinn Joao Cancelo í sumar.

Cancelo gekk í raðir Bayern á láni frá Englandsmeisturunum í janúar en hann er talinn einn sá besti í heimi í sinni stöðu.

Samkvæmt Sport ætlar Barcelona að blanda sér í baráttuna eftir ákvörðun Bayern og vill fá Portúgalann til Spánar.

Það vekur töluverða athygli þar sem Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum og væri í vandræðum með að borga svo háa upphæð.

Ljóst er að Cancelo á ekki framtíð fyrir sér á Etihad en hann er enn samningsbundinn til ársins 2027.

Enski boltinn á 433 er í boði

Fleiri fréttir Mest lesið Nýlegt