Innlent
| mbl
| 10.12.2020
| 10:16
| Uppfært
10:56
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotum af 5-kornablöndu frá Svansö sem Kaupfélag Skagfirðinga flytur inn. Varnarefnið etýlen-oxíð greindist í vörunni sem er ekki leyfilegt til notkunar í matvæli. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF, evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður, og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart, að því er segir í tilkynningu.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi lotur:
- Vöruheiti: Svansö 5 blanding, 350 g
- Strikamerki: 5760932013107
- Innflytjandi: Kaupfélag Skagfirðinga
- Best fyrir dagsetningar: 06.01.2022 og 14.03.2022
- Dreifing: Kaupfélag Skagfirðinga