Matur

Stöð 2
Í fyrsta þætti af Jólaboð með Evu, fengu áhorfendur að fylgjast með Evu Laufey baka rjómaostatoppa sem ættu að slá í gegn yfir hátíðarnar. Hér fyrir neðan má sjá brot úr fyrsta þættinum en uppskriftina má líka finna neðar í fréttinni.
Næsti þáttur af Jólaboð með Evu er á dagskrá á morgun, sunnudag klukkan 19:05 á Stöð 2.
Klippa: Jólaboð með Evu – Rjómaostatoppar
Uppskrift – Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði
- 220 g smjör
- 200 g hreinn rjómaostur
- 225 g púðursykur
- 225 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk vanillusykur
- 600 g hveiti
- ½ tsk salt
- 3 tsk kanill
- 1 tsk lyftiduft
- 4 msk mjólk
- 100 g hvítt súkkulaði
Til að rúlla deiginu í:
- 100 g sykur
- 2 tsk kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjöri, rjómaosti og sykri saman þar til blandan verður kremkennd.
- Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið vel á milli.
- Setjið þurrefnin saman við deigið og hrærið vel. Hellið mjólkinni út í deigið í nokkrum skömmtum. Kælið deigið í 30 mínútur eða lengur.
- Mótið litlar kúlur með teskeiðum, rúllið upp úr kanilsykri og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið við 180°C (blástur) í 13 – 15 mínútur.
- Bræðið hvítt súkkulaði og hellið yfir kökurnar í lokin.
Tengdar fréttir

Þættirnir Jólaboð með Evu fóru af stað um helgina og verða sýndir alla sunnudaga fram að jólum. Í þáttunum gefur Eva Laufey Kjaran góðar hugmyndir fyrir mat og bakstur yfir hátíðarnar. Allar uppskriftirnar má finna hér í fréttinni.
Fleiri fréttir
Tarot dagsins
Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.