Það sem af er ári hefur sænska lögreglan lagt hald á fleiri þrívíddarprentuð skotvopn en allt síðasta ár. Óttast yfirvöld að slík vopn verði notuð til hryðjuverka. Isabel Thorén, sem stýrir skotvopnamiðstöð lögreglunnar, sagði þetta í samtali við TT fréttastofuna.
Hún sagði að vopnin samanstandi venjulega af þrívíddarprentuðum plasthlutum og nokkrum málmhlutum. Úr þessu eru búin til skotvopn sem virka.
Sænsk yfirvöld sögðu nýlega að áhuginn á þrívíddarprentuðum vopnum hafi aukist mjög hjá hópum öfgamanna og segja hættu á að slík vopn verði notuð til hryðjuverka.
Þrívíddarprentuð vopn eru ekki með raðnúmer og því er erfitt að rekja slóð þeirra. Sum þeirra eru einnig úr plasti að svo stórum hluta að það ekki er hægt að útiloka að þau komist í gegnum málmleitarhlið.
Haustið 2021 handtók sænska lögreglan 25 ára nýnasista sem var grunaður um að undirbúa hryðjuverk. Hann hafði hyllt norska fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik á Internetinu og hafði pantað sér hjálm með tveimur gopro-myndavélum en öfgamenn hafa stundum notað slíkar myndavélar til að senda ódæðisverk sín út í beinni útsendingu. Heima hjá manninum fann lögreglan stefnuyfirlýsingu, efni til sprengjugerðar og þrívíddarprentuð vopn.