Nýlega var Paul Flores, 45 ára, dæmdur í 25 ára til ævilangs fangelsis fyrir að hafa myrt Kristin Smart 1996. Þau voru skólasystkin. Lík Smart hefur aldrei fundist og hvarf hennar hefur í aldarfjórðung verið talið eitt dularfyllsta óleysta mannshvarfið í Kaliforníu.
Í október á síðasta ári var Flores fundinn sekur um að hafa myrt Smart. Það var 12 manna kviðdómur í Monterey County sem komst að þeirri niðurstöðu.
Flores var árum saman grunaður um að hafa myrt hana. Hann var handtekinn og ákærður fyrir morðið í apríl 2021.
Smart var 19 ára þegar hún hvarf frá California Polytechnic State University í San Luis Obispo þann 25. maí 1996.
Los Angeles Times segir að Smart hafi fundist drukkin á grasbala eftir samkvæmi. Þrír samnemendur hennar, þar á meðal Flores, buðust til að fylgja henni heim á heimavistina.
Flores bjó næst henni og því fylgdi hann henni lengst en hinir yfirgáfu þau á leiðinni. Smart sást aldrei eftir þetta.
Leitað var að líki hennar áratugum saman en án árangurs. Hún var úrskurðuð látin, lögformlega, 2002.
2019 var hlaðvarp, í tíu þáttum, um hvarf hennar sent út. Það heitir „Your Own Backyard“ og vakti athygli á málinu á nýjan leik.
Lögreglan fékk meðal annars áhuga á málinu á nýjan leik og gerði hún leit hjá föður Flores, Ruben Flores. Við uppgröft undir sólpallinum hjá honum fannst mannsblóð. Það hafði þó þynnst svo mikið að ekki var hægt að nota það til DNA-rannsókna.
Lögreglan byggði síðan upp þá kenningu að Flores hefði reynt að nauðga Smart og að sú tilraun hefði endað með morði. Faðir hans hafi síðan hjálpað honum að leyna þessu.
Feðgarnir voru báðir ákærðir en þó í sitthvoru lagi. Paul Flores var fundinn sekur eins og áður sagði en faðir hans var sýknaður.